Sigmar er besti spyrill Íslands

Ekki finnast mér það stórar fréttir að gamall maður úti í bæ vilji hafa drottningaviðtöl og e.t.v. láta ráðherrana samþykkja spurningarnar sólarhringi fyrir viðtal.

Hins vegar fannst mér Sigmar afar góður í þessu viðtali og fór alltaf í kjarna málsins þegar reynt var að tala í kringum hann. Slíkt er alltof sjaldséð hjá íslensku fjölmiðlafólki.

Annað fólk mætti taka Sigmar sér til fyrirmyndar og láta ekki glepjast þegar stjórnmálamenn nota frasa eins og „það má alltaf deila um....en aðalatriðið er að...“ þegar þeir víkjast undan að svara erfiðum spurningum um afmarkað atriði, þ.e. hið umdeilda. 


mbl.is RÚV sagt kynda undir sleggjudómum og ofstæki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kannski full mikil staðhæfing í þessu.  

Í svona viðtölum sakna ég þess að hafa ekki þroskaðan fréttamann á borð við Brodda Broddason hjá Útvarpinu í spyrilsstólnum.

Set Sigmar og Helga Seljan á sama stallinn og hann er ekki hár. 

101 (IP-tala skráð) 23.10.2008 kl. 13:55

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Mér fannst Sigmar mjög góður

Hólmdís Hjartardóttir, 23.10.2008 kl. 14:03

3 Smámynd: Oddgeir Einarsson

Já hverjum þykir sinn fugl fagur... Ef fréttamaður spyr alltaf þeirra spurninga sem vakna í kollinum á mér dæmi ég hann góðan annars vondan!

Oddgeir Einarsson, 23.10.2008 kl. 14:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband