Aðeins af einkadansi

* Ef A býður B að horfa á sig dansa nakinn gegn greiðslu og B þiggur þetta tilboð frá A, hvaða siðferðislega rétt hefur C á að beita valdi til að stöðva þessi samskipti A og B sem enginn þarf að vera vitni að annar en þeir tveir?

* Menn stíga fram hver á fætur öðrum og tala um að mikilvægt sé að banna einkadans í Reykjavík m.a. vegna mansals. Getur einhver bent mér á svo mikið sem eitt dæmi um að einstaklingur hafi verið fluttur gegn vilja sínum til Íslands til að dansa nektardans?

* Jafnvel þótt staðfest dæmi væru um að einhver hefði einhverntímann verið neyddur til að stunda tiltekna atvinnu í Reykjavík, væri það þá fullgild rök til að banna atvinnugreinina?

* Ef það eru fullgild rök að banna tiltekna atvinnugrein vegna þess að fyrri kemur að fólk sé neytt til að stunda hana, þá eru veigamikil rök fyrir því að stöðva flestar atvinnugreinar heimsins þar sem fyrir kemur fyrir að nauðung sé beitt á flestum sviðum. Til dæmis ætti þá að vera löngu búið að banna vefnaðarframleiðslu á Indlandi og hrísgrjónarækt í Kína.

* Ég held að þeir sem berjast fyrir banni á einkadansi ættu að hætta að fela sig á bak við hugtök eins og mansal og viðurkenna að þeir vilja banna þetta einfaldlega af því að þeim sjálfum finnst þetta ósæmilegt. Það er einmitt það sem greinir nektardansinn frá hrísgrjónarækt og vefnaðarframleiðslu. Það þykir engum slíkar atvinnugreinar ósiðlegar þrátt fyrir gríðarlega mörg dæmi um að fólk sé látið stunda þær gegn vilja sínum. Þess vegna er beðið um bann við einkadansi en ekki vefnaði.

 


Tengsl Obama við islamska öfgamenn

Einhverjir óprúttnir andstæðingar Obama hafa gefið í skyn tengsl hans við islamska öfgamenn. Tilkoma OBAMA - BIDEN tvíeykisins mun ekki draga úr þessu:

OBAMA BI       DEN
OSAMA BIN LADEN

Eins og sést þá vantar ýmislegt upp á til að samhverfan verði sem mest og djöfullegust. Í fyrsta lagi er B í nafni Obama í stað S í nafni Osama. Þetta skýrist þó af því að orðin Satan og Beast geta haft svipaða merkingu.

Eins vantar inn í efri línuna stafina NLA. Það skýrist að því að það er skammstöfunin fyrir landssamtök bandarískra lögfræðinga, sbr. http://www.nla.org/.


mbl.is Frambjóðandi X og frambjóðandi Y
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær rök

Af mörgum ágætis rökum fyrir áframhaldandi veru flugvallarins í Vatnsmýrinni eru þau rök varla ofarlega á blaði að hann sé nauðsynlegur þegar flytja þarf íþróttahetjur með flýti frá Keflavík í hátíðarhöld í Reykjavík.

Af skrifum sumra bloggara mætti álykta að þetta væri það sem riði baggamuninn um framtíð Reykjavíkurflugvallar.


mbl.is Flogið beint til Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rökleysa

Ég skil ekki þetta mál. Vandamálið virðist vera að of margir séu að það sé uppselt á marga ferðamannastaði og að landið beri ekki alla þessa ferðamenn.

Af hverju ætti skylda til að kaupa íslenska leiðsögumenn að leysa vandamálið?

Er það af því að þjónusta þeirra sé of léleg til að selja hana ?


mbl.is Uppselt á ferðamannastaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innanríkismál

Þetta röfl um að engin megi skipta sér af innanríkismálum heyrist oft og ekki bara hjá einræðisstjórninni í Kína. Þetta heyrðist líka hjá Mugabe í Simbabwe (hvernig sem það er skrifað) og mörgum öðrum.

Ofbeldi er alltaf framið af fólki. Það skiptir engu hvort verið sé að pynta fanga, banna fólki að tjá skoðanir sínar, banna fólki að eiga viðskipti sín á milli, banna fólki að skoða vefsíður, banna fólki að iðka trúarbrögð, banna fólki að dansa fyrir hvert annað, myrða fólk eða hvað sem það er í hvert skiptið. Það eru alltaf einhverjar manneskjur sem taka ákvörðun um ofbeldið. 

Af hverju í ósköpunum ætti fólk (þar með talið þjóðhöfðingjar) að sætta sig frekar við ofbeldi sem er framið af ríkisstjórnum en öðrum? Afstaða kínverja í þessu máli er eins og hjá heimilisföður sem beitir fjölskyldu sína ofbeldi og býsnast yfir afskiptasemi af fjölskyldumálum sínum.

Á meðan einungis tiltölum er beitt ættu þeir að prísa sig sæla með að vera ekki komið frá með valdi.


mbl.is Bush láti af afskiptasemi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðhátíðarnauðgunarlög

Fyrir þá sem lesa hvatningar til nauðgana út úr Þjóðhátíðarlagi Baggalúts ættu EKKI að hlusta á lag sem Tvíhöfði sendi frá sér á plötunni Konungleg skemmtun árið 2001 er nefnist Þjóðhátíðarlag.

Hugrakkir geta nálgast lagið á tonlist.is gegn greiðlsu kr. 79 og einnig er unnt að fá 30 sekúndna tóndæmi úr laginu.

Ég gef mér að hin skeggjaða „ráðskona“ karlahóps Femínistafélags Íslands hafi misst af þessu lagi því ekki man ég eftir mikilli ólgu í samfélaginu við laginu árið 2001.


Lögfræði en ekki pólitík

Af umræðum um málið mætti ætla að það væri pólitískt mat ráðherra hvort hann staðfesti úrskurð Skipulagsstofnunar eða ekki.

Hið rétta er að um er að ræða stjórnsýslumál þar sem lægra setta stjórnvaldið, Skipulagsstofnun, hefur metið hvort túlka beri lög um mat á umhverfisáhrifum þannig að meta þurfi tiltekið atriði eða ekki. Þegar lagaskilningur Skipulagsstofnunar lá fyrir var ákvörðuninni skotið til umhverfsráðherra sem lagði mat á hvort að skilningur Skipulagsstofnunar á lögunum hefði verið réttur.

Ef pólitískar skoðanir ráðherra um aukna umhverfisvernd hafa ráðið niðurstöðunni þá er hún byggð á ólögmætum sjónarmiðum og er ógildanleg af dómstólum.


mbl.is Ákvörðun ráðherra kom mjög á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband