7.5.2007 | 18:28
Af hverju er lokaspurningin um Sjálfstæðisflokkinn
Getur einhver útskýrt fyrir mér vísindin á bak við það að spyrja hina óákveðnu hvort líklegra sé að þeir kjósi D - listann eða eitthvað annað.
Veldur þetta ekki því að fleiri svarendum er bjargað yfir úr hyldýpi hinna óákveðnu yfir til D - listans en til annarra flokka?
Og þar með að D mælist hærra en annað?
Spyr sá sem ekki veit.
![]() |
Samfylking og Sjálfstæðisflokkur bæta við sig fylgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.5.2007 | 13:36
„Þér er hér með vísað úr landi þar sem þú ert undanfari glæpahóps að mati einhvers manns í öðru landi sem hefur séð fólk sem er eins á litinn og þú“
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.5.2007 | 10:13
Eins barns stefnan er röng
Enginn hefur siðferðislegan rétt á því að banna fólki að eignast börn, hvort sem það einn maður, hópur manna eða ríkisstjórn.
Hinsvegar hvílir sú siðferðislega skylda á fólki að sjá fyrir börnum sínum og ala þau upp.
Ef barneignir eru vandamál fyrir kommúnistastjórnina þá verður hún að líta í eigin barm.
En það er ekki bara í teoríunni sem stefnan er slæm heldur eru mælanlegar afleiðingar hennar einnig vafasamar. Eins barns stefna kommúnista hefur leitt til gríðarlega mikilla drápa á kvenkyns fóstrum og óeðlilega háu hlutfalli karla í Kína.
![]() |
Varað við fólksfjölgun í Kína |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)