Stuttbuxnastrákar

Orðið stuttbuxnastrákar er gjarnan notað um einstaklinga í ungliðahreyfingu Sjálfstæðisflokksins af þeim sem eru ósammála þeim.

Mér hefur alltaf þótt þetta skondið og viðkunnanlegt uppnefni, sér í lagi þar sem mér finnst mjög þægilegt að vera í stuttbuxum, þótt ég sé ekki sjálfur í þessari ungliðahreyfingu.

Það var ekki fyrr en í gær að ég fór að velta þessu fyrir uppnefni mér. Er þetta í alvörunni samlíking við ungliðahreyfingu nasista í Þýskalandi á 4. áratugnum? Nei, þetta hlýtur að vera tilvísun í eitthvað annað...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rúnarsdóttir

Ég sé þá alltaf fyrir mér eins og drenghnokkana í barnabókunum eftir Jennu og Hreiðar Stefánsson, óheppna, einlæga, trygga og með hvíta spóaleggi þakta marblettum.

Rúnarsdóttir, 3.8.2007 kl. 11:01

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Ég kann ágætlega við orðið. Stuttbuxur notast í sól og blíðu og þegar manneskja trúir á hið frjálsa framtak þá er alltaf bjart framundan.

Geir Ágústsson, 4.8.2007 kl. 18:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband