25.10.2007 | 22:26
Rétthugsun á villigötum
Hvorki forstjóri ÁTVR né dópsalar neyða efnunum inn á fólk, burtséð frá slæmum afleiðingum af neyslunni í mörgum tilfellum.
Slæmar afleiðingar áfengis eru a.m.k. ekki minni en annarra vímuefna samanlegt hér á landi. Sérfræðingar í þessum efnum segja að áfengið sé stærsti skaðvaldurinn og mun fleiri sem hafa þurft að þola hörmulega æsku vegna neyslu áfengis (t.d. foreldra sinna) en fíkniefna.
Ef innflutningur á öðrum fíkniefnum en áfengi er svona siðferðislega ámælisverður að það réttlæti 10 ára fangelsi, hvað má þá forstjóri ÁTVR hafa á samviskunni að mati þeirra sem eru sáttir við þessa dóma?
Eða gerum við enga kröfu um samræmi í rökfærslu þegar pólitísk rétthugsun á í hlut?
![]() |
9½ árs fangelsi fyrir fíkniefnasmygl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það er nokkuð mikið til í orðum þínum..
gudni.is, 26.10.2007 kl. 17:35
"Eða gerum við enga kröfu um samræmi í rökfærslu þegar pólitísk rétthugsun á í hlut?"
Bingó!
Geir Ágústsson, 31.10.2007 kl. 19:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.