Hin hliðin á peningnum

Ég er sammála vörubístjórum að það eigi að lækka skatta og fagna því ef „þjóðin“ er óvænt komin inn á þá línu.

Þar sem skattar eru notaðir til að greiða fyrir ýmis útgjöld ríkisins, s.s. heilbrigðiskerfið, vegakerfið, lanbúnaðarkerfið, menntakerfið, listamannalaunakerfið, alþjóðlegt samstarf og svona mætti halda áfram að telja nánast út í hið óendanlega, þá ættu að vera hæg heimatökin að nefna þá kostnaðarliði sem skattalækkunarsinnar vilja fella niður.

Ég er sjálfur hlynntur því að fella sem flest niður þannig að ég þyrfti helst að telja upp það sem ég vil að ríkið standi í á kostnað skattborgara. Ég nefni t.d. lögreglu og dómstóla til þess að framfylgja lögum sem gera ofbeldi refsivert. Langflest annað má fara og því væri gríðarlegt svigrúm til að fella niður olíugjöld að fullu.

Hvar vilja vörubílstjórarnir og fólkið sem styður þá skera niður? Ég hef aðeins heyrt um að spara í flugkostnaði ráðherra (sem er ágætt) en það dugar víst skammt.


mbl.is Bílstjórar: „Við höldum áfram"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Obbobbobb, á nú að fara að gera fólki fyrir því hvernig kerfið virkar? Að fækka þurfi sjúkrarúmum, lækka almannatryggingabætur, einkavæða vegakerfið og hætta að styrkja atvinnuvegina úti á landi og fleira álíka, á móti lækkuðum álögum á eldsneyti ...

Gott framtak, en passar illa inn í "framkvæma fyrst, tala svo" hugsunarháttinn.

Það var fyrst í gær sem einhver bílstjóri reiknaði út hvað kostaði að keyra vörubíl út á land og bar það saman við tekjurnar. Það verða eflaust margir dagar þar til einhver áttar sig á því hvernig megi laga það hlutfall með öðrum hætti en breytingum á skattheimtu ;)     

Halli (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 14:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband