30.9.2007 | 17:39
Fulltrúi í öryggisráði versus gjaldkeri húsfélags
Hvernig mun hugsanleg seta fulltrúa Íslands í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna stuðla að betri heimi?
Eru Íslendingar A) betur að sér í þeim málum sem á reynir í ráðinu en aðrar þjóðir? Eða B) er stefna Íslands friðsamlegri en stefna annarra ríkja sem vilja taka sætið?
Ef hvorugt á við, A) eða B), liggur fyrir að peningum íslenskra skattborgara verður eytt í kosningabaráttu án þess að það stuðli að betri heimi. Hefur þá ekki verið spurt að því hvernig þetta gagnast Íslandi.
Má ég þá að biðja um að peningunum verði skilað aftur til þeirra er öfluðu þeirra, skattborgaranna, sem þá hafa meiri möguleika að láta gott af sér leiða, s.s. með fjárframlögum í þróunaraðstoð eða með því að auka viðskipti við slík lönd.
Það er með ólíkindum að ríkisstjórnir Íslands sem staðið hafa að framboðinu hafa aldrei rökstutt hvernig það muni leiða til betri heims. Einungis hef ég heyrt orðagjálfur um að við verðum að axla ábyrgð í hinu alþjóðlega samfélagi og vera tilbúin að taka þátt í þessu samstarfi þjóða.
Ef málið snýst um að bjóðast til að axla sömu byrðar og aðrar þjóðir hafa þurft að gera hefði mátt skila inn umsókn án þess að eyða krónu og leyfa hinum löndunum að kjósa okkur inn. Svona eins og þegar einhver tekur að sér að vera gjaldkeri í húsfélagi.
Ég hef aldrei heyrt um kosningabaráttu fyrir því að vera gjaldkeri húsfélags. Ef fjölskyldufaðir færi að eyða hundruðum þúsunda í kosningabaráttu fyrir því að vera gjaldkeri í blokk skuldaði hann fjölskyldu sinni skýringar á því. Annað hvort með því að hann myndi gera mun betri hluti en aðrir í þessu starfi, eða, og líklega mikilvægara, hvernig það kæmi fjölskyldunni vel að húsbóndinn tæki þetta að sér.
Ef engar skýringar fengjust er eðlilegast að álykta sem svo að framboðið sé bara persónulegt hégómaflipp húsbóndans og bruðlið með peninga fjölskyldunnar óréttmætt með öllu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.9.2007 | 11:27
Japanskur ljósmyndari
Í hvert skipti þegar Japani fellur á erlendri grund er heimurinn einum ljósmyndara fátækari.
![]() |
Japanskur ljósmyndari lést í átökunum í Myanmar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.9.2007 | 09:12
Hvað er málið?
Ég finn mig knúinn til að leggja orð í belg um íslenskukunnáttu þjónustufólks.
Þótt ótrúlegt megi virðast þá gildir hér sama prinsipp og með reykingar í einkafyrirtækjum, t.d. veitingastöðum. Ef þú ert ósáttur við reykingar/tungumálakunnáttu á viðkomandi stað þá er ekkert að því að fara út á þeim forsendum. Í umræðunni er talað eins og það sé eitthvað slæmt eða móðgun við starfsmann ef viðskiptavinur yfirgefur verslun á þessari forsendu. Þvert á móti er þessi háttsemi mjög gagnleg til þess að sumir þjónustuaðilar sjái hag sinn í að mæta þörfum þessara viðskiptavina. Í tilviki hinna reyklausu þurfa þeir sem vilja þjónusta þann hóp bara að banna reykingar hjá sér. Í tilviku íslenskuunnendanna með fjárfestingum, annað hvort í íslenskukennslu starfsmanna eða ráðningu Íslendinga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.9.2007 | 09:08
Reykingar eru hollari...
...en fasismi.
Höfundur ókunnur (mér).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2007 | 16:08
Nú aukast innbrot og vændi
Aðgerðir lögreglu munu líklega hafa í för með sér aukningu afbrota og vændis. Af hverju? Af því að þegar framboð á einhverju er minna en eftirspurn hækkar verðið.
Hörðustu dópistar eru ekki neytendur sem eru næmir fyrir verðhækkunum. Þeir leita því allra leiða til að fjármagna kaupin í stað þess að hætta neyslu. Eins og allir vita þekkist það að fíklar fjármagni neyslu með innbrotum og vændi þegar þá skortir fé.
Þetta er engin heimsendaspá heldur bara kommon sens.
![]() |
Lögregluaðgerðum að mestu lokið í Fáskrúðsfirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.9.2007 | 15:45
Fíkniefnavá
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.9.2007 | 11:47
Af yfirtökum og samrunum í skemmtanabransanum
Rekstraraðilar hins goðsagnakennda skemmtistaðar Ömmu Lú hafa nú keypt rekstur Barsins á laugavegi.
Áformað er að taka það besta sem hvor staður hafði upp á að bjóða og nefna staðinn því smekklega nafni Amma lúbarinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2007 | 08:59
Terían á LSH
Ég fór á Landspítala-háskólasjúkrahús um helgina. Þurfti bæði að koma við á deild örverurannsókna þar sem ég var með vírus og bakdeild þar sem ég var með eitthvað tak í bakinu.
Eftir þessi herlegheit þurfti ég á hressingu að halda og fór á kaffireríuna sem er staðsett að baka til á spítalanum. Svo skemmtilega vildi til að um var að ræða sameiginlega kaffiteríu bakdeildar og örverudeildar.
Nafnið á henni fannst mér þó frekar óaðlaðandi; Bakterían.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.9.2007 | 17:49
Góðir veðurguðir?
Í myndatexta segir að veðurguðirnir séu óvenju snemma á ferðinni í Vík.
Ef kuldi og rok er það sem veðurguðirnir koma með sér þá vil ég vera heiðingi í veðurfarslegu tilliti.
![]() |
Hálka og hvassviðri í grennd við Vík í Mýrdal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2007 | 13:47
Hvert fóru verðmætin?
Bæjarins beztu afsöluðu sér allri innkomi af sölu heillar helgar. Það eru einhverjar milljónir. Meirihlutinn fór í maga biðraðafúsra bæjarbúa. 306 þúsund fór í Konukot.
Ég var að velta því fyrir mér þegar ég sá tugi eða hundruð bíða eftir pulsu að fólk myndi eflaust taka tilboðinu jafn fegins hendi ef máltíðin kostaði 100 eða 50 krónur. Þá hefði Konukotið líka fengið margfalt meira.
En þetta voru bara hugleiðingar og engin tilætlunarsemi í mér gagnvart pulsusalanum enda auðvelt að vera vitur eftirá. Eftir stendur að pulsusalinn gaf mikið af sýnu, hver svo sem naut mest góðs af því.
![]() |
Pylsur og kók fyrir 30.554 tíkalla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 14.9.2007 kl. 09:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)