6.5.2007 | 23:38
Hvað hefði gerst við stjórnarmyndun?
Vinur minn spurði mig að því hvað myndi gerast við stjórnarmyndum ef forsetinn væri skyndilega ekki til taks. Ég byrjaði að fabúlera og birti hér mína niðurstöðu, þótt eflaust sé margt umdeilanlegt hér:
Líta verður til 8. gr. stjórnarskrárinnar:
Nú verður sæti forseta lýðveldisins laust eða hann getur ekki gegnt störfum um sinn vegna dvalar erlendis, sjúkleika eða af öðrum ástæðum, og skulu þá forsætisráðherra, forseti
1) Alþingis og forseti hæstaréttar fara með forsetavald. Forseti
1) Alþingis stýrir fundum þeirra. Ef ágreiningur er þeirra í milli, ræður meiri hluti.
Samkvæmt þessu ættu forsetar Alþingis og Hæstaréttar og forsætisráðherra að fara með forsetavaldið. Varla er hægt að skilja þetta þannig að nokkur munur sé á inntaki starfsskyldna forseta samkvæmt stjórnarskrá eftir því hvort hann fer sjálfur með valdið eða hinir þrír valdhafar.
Hefð er fyrir því í íslenskri stjórnskipan að forseti veiti umboð til stjórnarmyndunar að Alþingiskosningum loknum. Ekki er þó mælt beinlínis fyrir um þetta í stjórnarskránni. Að gefinni þeirri forsendu að um sé að ræða stjórnskipunarvenju sem beri að fara eftir er það skylda hinna þriggja handhafa forsetavalds að veita formanni stjórnmálaflokks umboð til stjórnarmyndunar.
Með öðrum orðum: Geir H. Haarde forsætisráðherra og Sólveig Pétursdóttir forseti Alþingis geta saman ráðið því hvort Geir H. Haarde eða einhver annar fái umboð til stjórnarmyndunar að kosningum loknum.
Erfitt er að sjá að nokkrar sérstakar hæfisreglur stjórnsýsluréttar eigi hér við enda vandséð hver annar ætti að koma í staðinn að ákvörðuninni. Ég verð að játa það að ég man ekki eftir að hafa heyrt minnst á hæfisreglu í stjórnskipunarrétti.
Hvað sem þessum hugrenningum mínum líður þá er ljóst að það ræðst ekki af því hver heldur á keflinu frá forseta hvaða stjórn við fáum heldur hvað menn semja um í reykfylltum bakherbergum. Ef Geir fær umboðið getur kaffibandalagið alveg ákveðið að ekkert þeirra fari heim af ballinu með Geir heldur taki Ingibjörg þá Guðjón Arnar og Steingrím báða með sér í staðinn ef atkvæði raðast þannig.
![]() |
Forsetinn við góða heilsu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.5.2007 | 17:05
Landbúnaðarkosningarnar 2011
Enginn stjórnmálaflokkur þorir eða vill gera neitt í landbúnaðarmálum á næsta kjörtímabili ef marka má kosningabaráttuna nú.
Kosningarnar 2011 munu ráðast af stefnu í landbúnaðarmálum. Einungis er raunhæft að Sjálfstæðisflokkur eða Samfylking taki af skarið hér. Milljarðar fara úr ríkissjóði í landbúnaðarstyrki o.fl. á ári hverju. Hér er gullið tækifæri til þess að draga úr útgjöldum ríkisins án þess að nokkur vinstrisjónarmið þurfi að koma í veg fyrir það.
Það ræðst einfaldlega af því hvort Samfylkingin eða Sjálfstæðisflokkurinn verði fyrri til að móta skýra og róttæka stefnu í þessum málum hvor flokkurinn sigri kosningarnar 2011.
Það þarf bara kjark til að segja bændum að menn ekkert ætla að vera að vinna bæði að sérhagsmunum þeirra og hagsmunum almennings á sama tíma. Engum verði hinsvegar bannað að styrkja bændur af fúsum og frjálsum vilja, telji þeir brýna nauðsyn á.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)