18.2.2010 | 11:35
Vanhæf ríkisstjórn?
Hver man ekki eftir sönglinu um vanhæfa ríkisstjórn?
Í lögfræði merkir hugtakið vanhæfi það að teljast ekki lögum samkvæmt hæfur til að fara með mál t.d. vegna hagsmunatengsla.
Hagsmunir núverandi ríkisstjórnar fara ekki saman með þjóðinni. Ástæðan er sú að ríkisstjórnin var búin að samþykkja að láta þjóðina borga vegna Icesave og barðist hatrammlega fyrir að þingið samþykkti það (sem það í Icesave I og fyrirvaralaust vegna Icesave II). Ef síðan næst samkomulag um gríðarlega lækkun á þessari byrði þýðir það að ríkisstjórnin var að vinna vægast sagt ansi slappa vinnu fyrir þjóðina. Það myndi aftur leiða til fylgishruns. Ögn skárri samningar væru e.t.v. í lagi en mun betri samningar yrðu pólitískt áfall fyrir ríkisstjórnina.
Þess vegna hefur e.t.v. sjaldan verið eins mikið tilefni og nú til að tala um vanhæfa ríkisstjórn.
(Með þessu er ég ekki að halda fram að vanhæfisreglur eigi við í lögfræðilegum skilningi um ríkisstjórnina í Icesave málinu heldur að slík sjónarmið eigi frekar við en oft áður).
![]() |
Bretar fallast á eftirgjöf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)