Af lýðskrumi

Hlutverk þingmanna er að segja almenn lög, m.a. um eftirlit með vinnustöðum og meðferð þar til bærra stofnanna á ásökunum í garð fyrirtækja. Ef þingmenn telja að lögin séu ekki nægilega skilvirk og leiði ekki til þess að mál séu rannsökuð nægjanlega fljótt eða vel þá geta þeir lagt fram frumvörp að nýjum eða breyttum lögum. Dómstólar skera síðan um ef ágreiningur er uppi um það að stofnanir ríkisins hafi fylgt lögum Alþingis.

Undanfarin misseri hafa menn hneykslast mjög af meintum afskiptum aðila ríkisstjórnarinnar af því að mál Baugs hafi verið tekin til opinberrar rannsóknar. Hefur því með réttu verið haldið fram að það eigi að vera mat viðkomandi stjórnsýsluaðila á grundvelli málefnalegra sjónarmiða byggðum á lögum hvort og hvernig mál séu rannsökuð en óeðlilegt sé að ráðherrar séu með fyrirskipanir „að ofan“ um meðferð einstakra mála.  Af þessum sökum vekur eftirfarandi athygli úr frétt mbl.is:

„Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs krefst þess að ríkisstjórnin hlutist þegar í stað til um opinbera rannsókn á þeim alvarlegu ásökunum sem fram hafa komið í fréttum undanfarna daga um vítaverða vanrækslu af hálfu Impregilo á vinnusvæðinu við Kárahnjúkavirkjun“

 

 


mbl.is VG krefst opinberrar rannsóknar á aðbúnaði verkamanna við Kárahnjúka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Þú ert semsagt á því að þingflokkar eigi ekki að hafa skoðanir, eða skipta sér af málum sem uppi eru á hverjum tíma; þeirra hlutverk sé einungis að sjóða saman lagafrumvörp og rýna í lagafrumvörp annarra eins og steindauðar vélar. Ég held, satt að segja, að kjósendur hafi fremur lítinn áhuga á þessháttar dauðyflum.

Jóhannes Ragnarsson, 28.4.2007 kl. 17:32

2 Smámynd: Oddgeir Einarsson

Sæll Jóhannes.

Mér finnst starf löggjafans mjög mikilvægt og tel nauðsynlegt að þingmenn vandi til verka við að leggja fram og rýna í lagafrumvörp. Ég tek ekki undir líkingu þína á því starfi við starfsemi „steindauðra véla“.

Auðvitað getur þetta fólk alveg haft skoðanir á hinu og þessu en eftir situr að það er kosið á löggjafarþingið til þess að fjalla um lög.

Það má vel vera að það sé rétt hjá þér að kjósendur hafi áhuga á einhverju allt öðru en ég leita af í fari þingmanna, þ.e. vilja og getu til að setja tiltekin lög, og það hlýtur þá bara að þýða að ég sé ekki í hópi kjósenda  

Oddgeir Einarsson, 28.4.2007 kl. 21:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband