Nóg komið af þvaðri

Í gegnum tíðina hef ég lesið skrif örfárra hægrimanna sem segja að gjarnan sé vegið ómaklega að Birni Bjarnasyni og að hann eigi erfitt með að njóta sannmælis í umfjöllun um stjórnvaldsákvarðanir sínar. Ég hef ekki verið sérstaklega sammála slíku tali fyrr en nú.

Ímyndum okkur að X forstjóri ríkisstofnunar fari langt fram úr fjárheimildum sínum. Skipunartími X er að renna út og fjölmargir hæfir, sérfróðir og faglegir tilvonandi umsækjendur bíða eftir að fá að bítast um starfið eins og venjan er um bitastæð embætti. Þá tekur Björn Bjarnason dómsmálaráðherra þá ákvörðun að auglýsa embættið EKKI til umsóknar.

Í þessu tilfelli myndi ég líta svo á að það væri efnislega röng ákvörðun hjá Birni að ákveða að kanna ekki hvort hæfari einstaklinga væri að finna í starfið. Það væri aðeins í þeim tilfellum sem viðkomandi hefði staðið sig óaðfinnanlega í starfi sem til greina kæmi að skipa hann áfram án þess að auglýsa starfið.


mbl.is Jóhann er toppmaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Marlon Brando hættur

Þau óvæntu tíðindi voru að berast að Marlon Brando væri hættur í starfi lögreglu- og tollstjórans á Suðurnesjum.
mbl.is Jóhann tilkynnti afsögn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Furðufrétt

Ég veit ekki hvers konar frétt þetta á að vera eða hvaða hagsmunum hún á að þjóna. Ef hún hefði aðspurð fyrirfram útilokað stríð gegn þjóð sem gerir árás á aðildarríki Nato væri um að ræða ásetning til að brjóta Natosáttmálann. Veit ekki hvað Íslendingum myndi þykja ef þjóðir heims útilokuðu fyrirfram að verja Ísland, þvert á skuldbindingar sínar, ef Rússland hyggðist innlima það.
mbl.is Palin vill ekki útiloka stríð við Rússa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtilegar fréttir

Ég var fyrir óvæntri ánægju í gær þegar ég sá frétt á Stöð 2 um að mál væri í gangi hjá Mannréttindadómstóli Evrópu um hvort nýr gríðarstór öreindahraðall í Sviss bryti gegn rétti fólks til lífs sem nýtur verndar samkvæmt 2. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu. Málsástæðan er sú að verði hraðallinn ræstur kunni það að leiða til myndunar örlítils svarthols sem muni smám saman gleypa í sig jörðina. Það er kannski óeðlilegt að mér þyki þetta fyndið. Kannski bara svartur húmor.

fréttaþreyta

Það liggur við því að ég vonist til að semjist í þessu bara af því að ég er orðinn svo leiður á því að allir fréttatímar og viðræðuþættir séu fullir af þessu máli. Það sem gerir síðan útslagið eru allar líkingarnar. Þær eru víst vanar löngum og erfiðum fæðingum....zzzzzzzzz.....
mbl.is Eitt barn fæddist á LSH í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

brandari

Finnst dálítið sorglegt að sjá brosin á þessum krökkum sem eru að reyna að styggja ekki "böðlana". Ég trúi því ekki að margir hafi gaman að láta hella ógeði yfir sig og niðurlægja sig. Mér finnst alveg gríðarlega athyglisvert að það skuli vera látið viðgangast að einhverjir krakkagemlingar fái útrás fyrir hvatir sínar á þennan hátt á skólalóðum. Það er eitt að fólk sem áhuga hefur á drottnun, undirgefni og niðurlægingu hittist af fúsum og frjálsum vilja í heimahúsum til að stunda svona afbriðgilegheit. En að þetta sé látið fara fram á lóðum skóla í opinberri eigu. Þvílíkur brandari. Það er alveg með óíkindum hvað fólk getur umborið í krafti hefða og vana.
mbl.is Varað við busavígslum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins af einkadansi

* Ef A býður B að horfa á sig dansa nakinn gegn greiðslu og B þiggur þetta tilboð frá A, hvaða siðferðislega rétt hefur C á að beita valdi til að stöðva þessi samskipti A og B sem enginn þarf að vera vitni að annar en þeir tveir?

* Menn stíga fram hver á fætur öðrum og tala um að mikilvægt sé að banna einkadans í Reykjavík m.a. vegna mansals. Getur einhver bent mér á svo mikið sem eitt dæmi um að einstaklingur hafi verið fluttur gegn vilja sínum til Íslands til að dansa nektardans?

* Jafnvel þótt staðfest dæmi væru um að einhver hefði einhverntímann verið neyddur til að stunda tiltekna atvinnu í Reykjavík, væri það þá fullgild rök til að banna atvinnugreinina?

* Ef það eru fullgild rök að banna tiltekna atvinnugrein vegna þess að fyrri kemur að fólk sé neytt til að stunda hana, þá eru veigamikil rök fyrir því að stöðva flestar atvinnugreinar heimsins þar sem fyrir kemur fyrir að nauðung sé beitt á flestum sviðum. Til dæmis ætti þá að vera löngu búið að banna vefnaðarframleiðslu á Indlandi og hrísgrjónarækt í Kína.

* Ég held að þeir sem berjast fyrir banni á einkadansi ættu að hætta að fela sig á bak við hugtök eins og mansal og viðurkenna að þeir vilja banna þetta einfaldlega af því að þeim sjálfum finnst þetta ósæmilegt. Það er einmitt það sem greinir nektardansinn frá hrísgrjónarækt og vefnaðarframleiðslu. Það þykir engum slíkar atvinnugreinar ósiðlegar þrátt fyrir gríðarlega mörg dæmi um að fólk sé látið stunda þær gegn vilja sínum. Þess vegna er beðið um bann við einkadansi en ekki vefnaði.

 


Tengsl Obama við islamska öfgamenn

Einhverjir óprúttnir andstæðingar Obama hafa gefið í skyn tengsl hans við islamska öfgamenn. Tilkoma OBAMA - BIDEN tvíeykisins mun ekki draga úr þessu:

OBAMA BI       DEN
OSAMA BIN LADEN

Eins og sést þá vantar ýmislegt upp á til að samhverfan verði sem mest og djöfullegust. Í fyrsta lagi er B í nafni Obama í stað S í nafni Osama. Þetta skýrist þó af því að orðin Satan og Beast geta haft svipaða merkingu.

Eins vantar inn í efri línuna stafina NLA. Það skýrist að því að það er skammstöfunin fyrir landssamtök bandarískra lögfræðinga, sbr. http://www.nla.org/.


mbl.is Frambjóðandi X og frambjóðandi Y
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær rök

Af mörgum ágætis rökum fyrir áframhaldandi veru flugvallarins í Vatnsmýrinni eru þau rök varla ofarlega á blaði að hann sé nauðsynlegur þegar flytja þarf íþróttahetjur með flýti frá Keflavík í hátíðarhöld í Reykjavík.

Af skrifum sumra bloggara mætti álykta að þetta væri það sem riði baggamuninn um framtíð Reykjavíkurflugvallar.


mbl.is Flogið beint til Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rökleysa

Ég skil ekki þetta mál. Vandamálið virðist vera að of margir séu að það sé uppselt á marga ferðamannastaði og að landið beri ekki alla þessa ferðamenn.

Af hverju ætti skylda til að kaupa íslenska leiðsögumenn að leysa vandamálið?

Er það af því að þjónusta þeirra sé of léleg til að selja hana ?


mbl.is Uppselt á ferðamannastaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband