Færsluflokkur: Bloggar

Rétthugsun á villigötum

Hvorki forstjóri ÁTVR né dópsalar neyða efnunum inn á fólk, burtséð frá slæmum afleiðingum af neyslunni í mörgum tilfellum.

Slæmar afleiðingar áfengis eru a.m.k. ekki minni en annarra vímuefna samanlegt hér á landi. Sérfræðingar í þessum efnum segja að áfengið sé stærsti skaðvaldurinn og mun fleiri sem hafa þurft að þola hörmulega æsku vegna neyslu áfengis (t.d. foreldra sinna) en fíkniefna.

Ef innflutningur á öðrum fíkniefnum en áfengi er svona siðferðislega ámælisverður að það réttlæti 10 ára fangelsi, hvað má þá forstjóri ÁTVR hafa á samviskunni að mati þeirra sem eru sáttir við þessa dóma?

Eða gerum við enga kröfu um samræmi í rökfærslu þegar pólitísk rétthugsun á í hlut?


mbl.is 9½ árs fangelsi fyrir fíkniefnasmygl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hörmulegt aðgengi

Í kjölfar áfengisfrumvarpsins hefur forsjármaskínan farið í gang. Nú keppist vel meinandi fólk við að útlista hversu gott fyrirkomulagið er núna í umsjá ÁTVR. Aðgengið og þjónustan sé með besta móti og hafi batnað mjög á undanförnum árum.

Hvar hafa þessir aðilar verið, sem spá dauða og hörmung með auknu aðgengi að bjór og léttvíni, þegar aðgengi ÁTVR hefur verið stóraukið í gegnum árin?

Af hverju hefur ekki heyrst eins mikið frá baráttu þessara aðila fyrir verra aðgengi að áfengi í verslunum ÁTVR öll þessi ár?

Eru hörmungarnar sem leiða af auknu aðgengi hjá ÁTVR betri en hörmungarnar sem leiða af því aukna aðgengi sem felst í að bjór fari í almennar búðir?


Sannleikann í brennidepil

Ekki hef ég hugmynd um hvort svartir séu að meðaltali greindari en hvítir eða öfugt, eða hvort greindin er nákvæmlega hin sama að meðaltali. Ég hef heldur engar skoðanir til eða frá um hver sannleikurinn sé.

Ef Vísindasafnið veit um rannsóknir um greind svartra og hvítra sem taka af allan vafa væri einfaldlega best fyrir það að vísa til þeirra í stað þess að reyna að þagga niður í öllum sem halda fram staðreyndum sem eru í andstöðu við rannsóknirnar. Þöggun nefnilega aðferð þeirra sem vilja fela sannleikann.

Eftir þetta sjálfsmark er staðan því 1-0 fyrir Dr. Watson gegn Vísindasafninu í Bretlandi.


mbl.is Hætt við fyrirlestur vísindamanns eftir að hann lét umdeild ummæli flakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rasismi

Kunningi minn, Ingi Halldórsson á Egilstöðum, hefur undanfarið sakað mig um rasisma í garð litaðs fólks, sérstaklega svertingja. Ég kann honum litlar þakkir fyrir þetta enda vita þeir sem mig þekkja að engar skoðanir eru mér jafn fjarlægar og að verðleikar manna ráðist af hörundslit. Ég lét hann heyra það í símtali í gærkvöldi þar sem ég sagði orðrétt svo að hann gat ekki misskilið það:

„Ég vil ekki að mannorð mitt sé svert, Ingi!“


Konur og börn

Iðulega er tekið fram í fréttum hversu margar konur og börn látast úr hópi óbreyttra borgara þegar hernaðaraðgerðir eru annars vegar. Það má vel vera að þetta sé hið eðlilegasta framsetning en sú tilfinning læðist alltaf að mér að í þessu felist skilaboð um að skárra hefði verið ef fórnarlömbin hefðu verið karlkyns.

Nú hljóma ég e.t.v. eins og kynjafræðingur að lesa Smáralindarbækling...


mbl.is Konur og börn létust í árásum Bandaríkjamanna í Írak
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múghyggjustjórnin

Það er vert að leiða hugan að því þegar „nýji“ meirihlutinn tilkynnti um félagshyggjustjórn hvort um nokkra breytingu sé að ræða. Útsvarið er í toppi og ekki man ég eftir því að staðið hafi til að lækka það. Þvert á móti þá sá Sjálfstæðisflokkurinn til þess að hverrri krónu væri eytt, þ. á m. í strætókort og auknum niðurgreiðslum á leikskólagjöldum. Fráfarandi borgarstjóri var alls ekki fastur í neinni „menntaskólafrjálshyggju“ eins og verðandi borgarstjóri kallar það, en frjálshyggja felst m.a. í að virða frelsi einstaklinga til að gera hvaðeina sem brýtur ekki á rétti annarra. Þetta gerði fráfarandi borgarstjóri með glæsibrag þegar hann formælti veru fólks hér á landi sem stundar lögmæta atvinnu í sínu heimalandi sem honum líkaði ekki við (klám- eða erótíkurkvikmyndagerð). Einnig stóð hann sig vel í félagshyggjunni (eða múghyggjunni) þegar hann fékk því framgengt á einhvern óskiljanlegan hátt að lítill ísskápur yrði tekinn úr sambandi verslun ÁTVR í Austurstæti.

Sem hægrimaður fagna ég nýrri borgarstjórn. 

 


mbl.is „Fyrrum minnihluti bjargaði Birni Inga fyrir horn"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spakmæli

Ef konan þín sér lögreglumann og kveðst vilja láta handtaka sig þá skaltu vona að þér hafi ekki misheyrst.


Fyrsta sinn?

Minnir að ég hafi lesið um mál frá Englandi þar sem óskað var eftir framsali þýsks morðingja til USA en því hafi verið hafnað á þeirri forsendu að það bryti gegn 3. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, sem leggur bann við pyntingum og ómannúðlegri meðferð fólks. Ástæðan var sú að veruleg hætta væri á því að viðkomandi yrði dæmdur til dauða og ákvörðun um framsal bryti því gegn 3. gr. MSE. Dauðarefsingin sem slík var þó ekki upgefin ástæða í forsendum dómsins heldur félli hin langa og ömurlega bið fanga á dauðadeildum undir ómannúðlega meðferð.

Skrifa þetta bara eftir minni en þetta mál er a.m.k. 6 ára gamalt og líklega eldra.

 


mbl.is Bandarískur dómari bannar framsal á fanga frá Guantanamo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Röksemdir í áfengissölumálum

Þegar frelsissviptingarsinnar mæla fyrir enn einni frelsisskerðingunni þá vísa þeir iðulega til þess að æskilegt sé að hafa reglurnar okkar eins og „í löndunum sem við berum okkur saman við“. Ég veit ekki betur en bjór og léttvín sé víðast hvar í Evrópu selt í búðum (gætu þó verið einhverjar undantekningar á þessu). Af hverju telur þetta fólk ekki að röksemdin um reglusamræmið eigi eins við hér?

Persónulega tel ég þá staðreynd eina að Ísland sé með strangari reglur en aðrar þjóðir ekki rök með því að leyfa bjór og léttvín í búðum. Rökin með því eru óhagganleg réttlætisrök sem væru gild jafnvel þótt áfengi væri með öllu bannað allsstaðar annars staðar í heiminum. Rökin eru einfaldlega þau að ef hvorki kaupandi né seljandi er þvingaður til viðskipta sé rangt af þriðja aðila að koma í veg fyrir viðskiptin með valdi, hvort sem þriðji aðilinn er einn maður, margir eða fulltrúar margra manna (alþingismenn).

Til að forðast algengan misskilning þá veit ég alveg af rökum gegn þessu um að aukið aðgengi að áfengi kunni að auðvelda sumum að skaða sig með neyslu þess. Það breytir engu um að rökin með auknu frelsi standa óháð reglum annarra landa.


mbl.is Léttvín og bjór í búðir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Listin að vera með aulahúmor

Sem aðdáandi aulahúmors (orðaleikjakímnigáfu) langar mig að leggja orð í belg.

Ég er með þá kenningu að brandarar í þessum flokki verði annað hvort að vera mjög góðir eða mjög slæmir til að koma þeim efnaferlum af stað í heilanum sem leiða til ákveðinnar tegundar vellíðunar og stundum til hláturs. Meðalmennska á þessu sviði kemur engum í gott skap.

Ég skal taka dæmi.

Af einhverjum ástæðum telja knattspyrnulýsendur í sjónvarpi sig knúna til að slá á létta strengi af og til þessi misserin. Bjarni Fel var og er ekki í þeim pakka. Oft eru þetta athugasemdir þar sem lýsandinn hefur komið auga á grunnhráefnið í aulahúmor, sem er fleiri en ein möguleg merking sama orðs. Lýsendurnir kunna hins vegar lítið að vinna úr hráefninu og skella því svo til algerlega óunnu framan í áhorfendur.

Ég get tekið tvö dæmi um þetta í síðasta leik sem ég horfði á og Hörður Magnússon lýsti, Manchester United gegn Wigan Athletic á laugardaginn. Það fyrra var þegar leikmaður United, Danny Simpson hafði gert vel og þulurinn sagði eitthvað á þessa leið: „Danny Simpson búinn að vera góður, hann er þó ekki í Simpson fjölskyldunni“. Hér gætir þulurinn sig á því að tengja svo illa saman þær tvær hugmyndir sem hann taldi að nafnið Simpson myndi vekja í hugum áhorfenda að athugasemdin verður hreint óbærilega fyndin. Betri tenging, eins og „Simpson er búinn að skemmta áhorfendum í dag bæði hér á Sýn og á Stöð 2“, hefði falið í sér meðalmennsku en ekki komið af stað neinum skemmtilegum efnahvörfum í heilanum. Það, að tilkynna að Danny Simpson sé ekki í Simpson fjölskyldunni er hinsvegar óborganlegt. Hér á lýsandinn mikið hrós skilið fyrir hugrekki sem þarf til að segja nógu slæman aulabrandara til að hann sé fyndinn.

Hitt dæmið í úr sama leiknum var þegar leikmaður Wigan, Valencia að nafni, var með knöttinn. Eins og margir vita er borg á Spáni sem heitir Valencia og þar leikur lið sem ber nafn borgarinnar. lýsandinn var ekki lengi að koma auga á þessa tengingu og sagði: „Valencia er með boltann, þó ekki liðið“.

Sjálfur næ ég mér sjaldan upp úr meðalmennskunni þegar kemur að aulahúmor en vona að ég falli þeim mun oftar niður úr henni.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband