Blindi fréttaskýrandinn

1. Í stefnuskrá VG sem flokkurinn boðaði í síðustu kosningum og fékk ágætis hljómgrunn hjá kjósendum segir orðrétt: „Hugsanlegur ávinningur Íslands af Evrópusambandinu réttlætir ekki frekara framsal á ákvörðunarrétti um málefni íslensku þjóðarinnar og er aðild að Evrópusambandinu því hafnað.“

2. Fjölmargir framámenn í VG skrifa undir yfirlýsingu þar sem formaður flokksins er kallaður ómerkingur kjósi hann með aðildarumsókn að ESB.

3. Í atkvæðagreiðslu á Alþingi greiddi forysta VG og meirihluti þingflokksins atkvæði með því að Ísland sækti um að ganga í ESB.

5. Margir kjósendur VG hætta við að styðja flokkinn.

5. Gissur Sigurðsson fréttamaður sagði í morgunþætti Bylgjunnar í morgun að meginskýringin á fylgistapi VG væri sú að flokkurinn hafi þurft að fronta erfið mál, sbr. Icesave málið. Ekki taldi fréttamaðurinn að smá viðsnúningur flokksins í smámálinu um ESB væri þess verður að nefna í þessu samhengi.

        

 

 

 


mbl.is Ríkisstjórnin með 43% stuðning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband